ATH - í þessari færslu er video... bloggkreisíness hjá múttu!!!! Sjá neðarlega!
Nú er að fara að detta í allra nýjustu myndirnar... það er óhætt að dást að þeim sem hafa komist í gegnum þetta allt ;o)
Koppamyndir eru vinsælt myndefni þessa dagana
Það verður að sjálfsögðu að hafa lesefni
Í fyrsta skipti í sumarbústaðinn hjá ömmu og afa (aldrei komist alla leið). 6. apríl 08
Aðal stuðið að hoppa þessa dagana
Flottur með Guðrúnu ömmu í sumó
Það verður að bjarga sér: Í barna ruggustólnum
Gott að vera í sólinni og með nóg að gera á koppnum
... mamma situr til hliðar til að vakta að maður fari sér ekki að voða
Duglegir feðgarnir að gera við skjólvegginn sem fauk af í óveðrinu í vetur
Svalur gaur með dýru sólgelraugun hans pabba
Ungbarnasundsæfingarnar teknar í pottinum í sumó
... í geggjað flottu Hawai sundskýlunni
1, 2, 3 og vatn
Knarrarósviti, rétt hjá Baugsstöðum þar sem Svana amma er fædd og uppalin. Múttitz var í sveit þar á æsku árum :o)
Mútta, Bergur Davíð, Hrafn afi og Guðrún amma
Komin inn í vitann. Siggi bróðir Siggeirs langa afa Bergs er vitavörður þar.
Amma beið niðri með Berg Davíð
Geggjað útsýni
Lára með Baugsstaði í bakgrunn
Bergur farinn að garga hjá ömmu
6 mánaða afmælisveisla, 11. apríl 08.
Mamma bakaði þessa fínu súkkulaðiköku
Auðvitað er kökusneið og súkkulaðikremi hent niður á pabba í tilefni dagsins :o)
Pétur Ingi og Hugrún Ylfa í heimsókn svo frændi þeirra gleymi þeim ekki og verði fúll þegar hann ser þau næst. Engin hætt á því... svona skemmtileg frændsystkyn.
Mæðginin fóru í Stykkishólm í "vinnuferð" 14. til 17. apríl. Afi að fara á kostum.
Hoppurólan sló í gegn í ferðinni. Viskastykki til að meiða sig ekki á bandinu og klósettpappír og sleifar frá ömmu til að leika sér með.
í geggjuðu svingi!
Með pabba í skype spjalli í tölvunni (uppi í hægra horninu)
Vinnuferðin fólst í því að það er verið að breyta neðri hæðinni hjá ömmu og afa. Sauna tekin út og á að setja eldhús í staðinn fyrir litlu fjölskylduna.
Smá pláss ;o)
Auðvitað var drengurinn myndaður í sinni vel heppnaða hoppi "kasti"
Kominn heim aftur
Kveðja,
Litla fjölskyldan